Um mig

Prjónakonan er stofnuð utan um áhuga á nýjum aðferðum í prjónaskap, svo sem The Magic Loop, og KnitPicks prjónana sem eru einstaklega vel til þess fallnir til að nota með The Magic Loop.

Ég heiti Elín Einarsdóttir og hef haft áhuga á prjónaskap lengi. Mamma mín kenndi mér að prjóna sem barn en ég fór ekki að prjóna af alvöru fyrr en um rúmlega tvítugt. Síðan þá hef ég hægt og rólega viðað að mér þekkingu á hinum ýmsu prjónaaðferðum, íslenskum sem erlendum. Internetið er hafsjór fróðleiks og það er margt áhugavert og spennandi þar að finna. Auk þess að leita mér fróðleiks á internetinu hef ég eytt nokkrum tíma í Ameríku og kynnst ýmislegu þar.

Ef þú vilt hafa samband þá geturðu gert það í gegnum netfangið prjonakona hja gmail punktur com

Ferilskrá

Kennsla:

2007:
Tveir sokkar prjónaðir á einn hringprjón, kennt í Nálinni

2008:
Tveir sokkar prjónaðir á einn hringprjón, kennt í Nálinni

Tveir sokkar prjónaðir á einn hringprjón, kennt á Selfossi

2009:
Tveir sokkar prjónaðir á einn hringprjón, kennt í Skrínunni á Selfossi

Rússneskt hekl, kennt í Skrínunni á Selfossi

Tveir sokkar prjónaðir á einn hringprjón, námskeið á Vík og Kirkjubæjarklaustri

Námskeið:

Stitches South 23. - 26. apríl 2009

Don't Fear Lace, kennari: Debbie Radke

Þar var farið yfir undirstöðuatriði í gata-/munsturprjóni og hvernig túlka á prjónamynstur sem teiknuð eru í rúður. Þrátt fyrir að hafa prjónað eftir teiknuðum prjónamynstrum og eitthvað prjónað af gata-/munsturprjóni var gott að sitja þetta námskeið þar sem ég myndaði góð tengls við kennarann og er með helstu atriði sem þarf að fara yfir á hreinu.


Shetland Shawls, kennari: Joan Shrouder

Þetta var ofboðslega skemmtilegt námskeið þar sem farið var yfir uppbyggingu Shetlandssjalanna, Danska Prinsateppið er gott dæmi um Shetlandssjal, bæði hvernig þau voru prjónuð áður en hringprjónarnir komu til sögu og svo hvernig þau eru prjónuð núna. Mér finnast þessi sjöl sérstaklega skemmtileg þar sem einungis eru fitjaðar upp þrjár lykkjur í upphafi, nokkrum lykkjum bætt við þegar kemur að því að prjóna ysta jaðarinn og affellingin er sama sem engin ef rétt er að staðið. Þessi sjöl er hægt að prjóna eins flókin eða eins einföld og þú vilt með frábærum og, í flestum tilfellum, gullfallegum árangri.


Thinking Outside the Rectangle, kennari: Sandy Rosner

Á þessu námskeiði var farið yfir hin ýmsu form sem sjöl geta tekið á sig, önnur en þessi hefðbundnu ferköntuðu eða þríhyrndu. Minnst var meðal annars á færeysku sjölin, Pi sjalið hennar Elizabeth Zimmerman, opna og lokaða hringi og ferninga og fleira og fleira. Þetta námskeið ýtti enn frekar á áhuga minn á að kenna námskeiðið “Hannaðu þitt eigið sjal” sem ég mun vonandi geta boðið uppá í haust.


Creative Wraps and Shawls to Your Porportion, kennari: Susan Lazear

Hér var farið yfir hvernig við erum öll sköpuð mismunandi og þurfum þar af leiðandi oft að aðlaga það sem við ætlum að prjóna með tilliti til þess. Það fyrsta sem við gerðum var að læra að taka mál af okkur á réttan hátt, þannig að mark væri að. Næst skoðuðum við mismunandi sjöl og flíkur með tilliti til þess að hanna þau eftir okkar málum. Forskriftirnar sem við fengum (3 mismunandi flíkur) voru ekki þessar hefðbundnu sem segja “Fitjaðu upp X lykkjur” heldur voru stærðirnar gefnar upp sem t.d. “2,2 sinnum lengd frá öxlum og að mitti sinnum prjónfesta” og það var lykkjufjöldinn sem við áttum að fitja upp. Þetta gerir það að verkum að kona sem er í stærð XS og önnur sem er í stærð XL geta báðar notað sömu forskriftina og fengið úr flík sem passar.

Stitches South 22. - 25. apríl 2010

Entrelac Design og Entrelac Mix and Match, kennari: Gwen Bortner

Entrelac er aðferð sem hefur hlotið heitið bútaprjón á íslensku. Námskeiðin sem ég fór á snérust um það hvernig hægt er að vinna með bútaprjónið, t.d.:

  • nota mismunandi prjónamynstur innan bútanna
  • nota mismunandi liti innan bútanna
  • vinna með búta í mismunandi stærðum
  • hvar og hvernig er best að nota sauma

Flestir sem kynnast bútaprjóninu byrja á því að vinna með eina stærð búta og oft eru leiðbeiningar skrifaðar þannig að hálfir bútar eru prjónaðir og svo saumaðir saman. Gwen er kölluð drottning bútaprjónsins (the Queen of Entrelac) og það ekki að ástæðulausu því hún hefur komið fram með margar nýjungar tengdar bútaprjóninu sem og nýjar leiðir til að hugsa um og nýta bútaprjónið.

Netverslunin

Netverslunin var opnuð 23. júlí 2008 og var fyrst um sinn eingöngu boðið upp á Knit Picks prjóna, hægt og rólega hefur bæst í hópinn, bæði í úrvalið af Knit Picks vörum sem og hlutir eins og hesputré, vírar til að strekkja gataprjón og fleira. Ég er alltaf með augun opin og að líta í kring um mig eftir hlutum sem mér finnst vanta á markaðinn hér á Íslandi. Eins og er stendur til að fara að bjóða upp á garn, bæði ólitað sem hægt verður að leika sér með og lita sjálfur (tilvalið fyrir námskeið í jurtalitun sem Heimilisiðnaðarfélagið býður uppá á vorin), sem og handlitað garn.

Ef það er eitthvað sem ykkur finnst vanta endilega ekki hika við að hafa samband og koma með uppástungur.