Prjónar
Prjónarnir eru komnir
Knit Picks prjónarnir eru komnir og verða fyrst um sinn eingöngu til sölu í Hannyrðaversluninni Nálinni, Laugavegi 8, 101 Reykjavík. Þegar innkaupakerfið verður komið í gagnið hér á síðunni verður hægt að kaupa Knit Picks prjónana í gegnum það og fá þá senda með pósti.
 
Bambus prjónar

Prjónar sem gerðir eru úr bambus eru sífellt að verða vinsælli og vinsælli. Þeir henta vel þeim sem einhverra hluta vegna þola ekki eða vilja ekki nota málm eða plast prjóna.

Auk þess sem bambusinn er vinsæll í prjóna þá hefur aukist mikið að hann sé notaður í garn og efni. Bambus garnið og efnið hefur hlotið lof fyrir hversu mjúkt það er auk þess sem ýjað er að því að það hafi bakteríudrepandi eiginleika.

 
Sokkaprjónar
Sokkaprjónar eru elstu þekktu prjónarnir og eru enn í fullri notkun í dag. Þeir eru eins og nafnið gefur til kynna mikið notaðir til að prjóna sokka og aðra sívala hluti eins og t.d. ermar. Hægt er að finna þá í ýmsum lengdum, styttri lengdirnar m.a. notaðar til að prjóna hólkana fyrir puttana á fingravettlingum og þær lengri fyrir stærri hluti, allt upp í peysur.
 
Beinir prjónar

Beinir prjónar koma í öllum stærðum og ýmsum lengdum. Þetta eru algengustu prjónarnir sem notaðir eru og þegar prjónaskapur er sýndur í myndum, sjónvarpinu og teiknimyndum þá eru það yfirleitt beinir prjónar sem sýndir eru.

Algengustu hlutirnir sem prjónaðir eru á beina prjóna eru tvívíðir, rétthyrningar, eins og treflar og teppi.

 
Hringprjónar

Hringprjónar eru einhverjir þeir fjölhæfustu prjónar sem hægt er að finna - og ekki er verra ef þeir eru í setti þar sem hægt er að vera með oddana sér og snúrurnar sér. Með hringprjónum er hægt að prjóna í hring (eins og nafnið gefur til kynna) og með því að nota The Magic Loop aðferðina er hægt að prjóna eins vítt stykki eða eins mjótt stykki og þú vilt með einum og sama hringprjóninum.

Eins er hægt að nota þá eins og beina prjóna og prjóna slétt stykki, allt frá þvottapokum og upp í stór rúmteppi. Kosturinn þegar verið er að prjóna stærri stykki á hringprjóna í stað beinna prjóna er sá að í stað þess að þyngdin á stykkinu setjist á enda prjónanna er hægt að sitja með þyngdina í fanginu og það hlífir höndunum.

Þegar hefur verið minnst á The Magic Loop aðferðina en hún leyfir þér að prjóna smærri hluti á einn hringprjón, og jafnvel tvo hluti í einu. Þessi aferð er tilvalin til að prjóna sokka, vetlinga, handstúkur og jafnvel ermar - báða hluti í einu á sama hringprjóninn í stað þess að nota 5 sokkaprjóna, eða 10 ef þú ætlar að prjóna bæði stykkin samtímis.