|
Knitter's Almanac eftir Elizabeth Zimmermann er skemmtileg bók þar sem bæði er talað um prjónaskap og annað sem er að gerast í lífi hennar á þeim tíma sem bókin er skrifuð. Í bókinni er eitt verkefni fyrir hvern mánuð, mis auðveld eða flókin en, að mínu mati, flest mjög skemmtileg. Ekki er mikið af myndum í bókinni og myndu einhverjir líta á það sem galla. |