|
Hvernig get ég haft samband við þig? |
|
Ef þú vilt hafa samband við mig þá er netfangið mitt prjonakona hjá gmail punktur com. Einhvern tímann í framtíðinni má búast við að ég fái mér símanúmer fyrir verslunina, en eins og er verður þetta að duga. |
|
|
Það er mér mikil ánægja að segja frá því að frá og með byrjun júlí 2008 verður hægt að panta fasta hringprjóna í stærð 2mm - 3,25mm í lengdunum 120 og 150 til viðbótar við hinar lengdirnar. Þar að auki munu koma beinir prjónar úr límtré í stærðum 3,5mm - 12mm og verða þeir fáanlegir í bæði 25cm lengd og 35cm. Síðast en ekki síst þá er von á heklunálum úr límtrénu með haustinu. |
|
Hvers vegna voru mörkin dregin við 3,5mm odda þegar samsettu hringprjónarnir voru hannaðir? Ástæðan er sú að skrúfgangurinn og skrúfstykkið þarf ákveðinn sverleika og ekki þótti borga sig að gera þá minni því þá er hætta á því pinninn með skrúfganginum hreinlega gefi sig og brotni.
Haustið 2008 komu oddar í stærðum 3mm og 3,25mm á markaðinn vegna mikillar eftirspurnar. Sömu rök og áður gilda fyrir því hvers vegna ekki er farið í að framleiða smærri odda með skrúfstykki, hætta er á því að pinninn með skrúfganginum gefi sig og brotni ef hann er minni. |
|
|
Þetta er ein af algengustu spurningunum sem spurt hefur verið frá því að sala á Knit Picks prjónunum hófst. Svarið er einfalt, oddarnir eru tæplega 12cm langir. 2 oddar á hvorum enda eru þá 24cm langir og snúran yrði að vera 16cm löng. Það er vonlaust að ælta að prjóna í hring með góðu móti þegar uppsetningin er svoleiðis. Á föstu hringprjónunum sem eru 40cm langir er oddurinn einungis 8,5cm sem gerir 17cm (tveir oddar) og snúran er þá 23 cm sem er mun þjálla. Það er mér mikil ánægja að segja frá því að frá og með haustinu 2008 bjóðast snúra og oddar til að mynda 40cm hringprjón frá Knit Picks. Oddarnir eru 10cm langir (með skrúfganginum), 1,5cm styttri en þeir venjulegur. Hægt er að nota stuttu oddana með öllum lengdum af snúrum, hafa verður í huga að möguleiki er að þeir séu óþjálli í hendi þegar verið er að prjóna heldur en venjulegu oddarnir. Ég mæli hins vegar ekki með að venjulegu oddarnir séu notaðir með 40cm snúrunni þar sem ekki er gott að prjóna þannig. |
|
|
|
|
|