Fróðleikur frá Jan
Fróðleikur frá prjónakonunni Janet Johnson Stephens.

Ferilskrá

Janet (Jan) Johnson Stephens er fædd 7. desember 1931 og hefur verið viðloðandi prjónaskap meira og minna frá því hún var í þriðja bekk og lærði að prjóna búta í teppi fyrir hermenn í stríðinu. Eftir smá hlé fór hún aftur að prjóna á unglingsárunum en eftir að hafa fengið D í félagsfræði vegna þess að hún prjónaði í tíma ákvað hún að prjónaskapur væri ekki fyrir sig.

Snemma á sjöunda áratugnum byrjaði hún aftur að prjóna og nýtti sér þekkingu sína á því hvernig flíkur eru hannaðar í saumaskap til að hanna sín eigin prjónamynstur. Í þetta sinn hélt hún prjónaskapnum við og árið 1967 hvatti mágkona hennar hana til að senda inn prjónastykki á sýningu þar sem hún fékk þriðju verðlaun. Árið eftir sendi hún aftur inn stykki og fékk fyrstu verðlaun fyrir tvö stykki og önnur verðlaun fyrir tvö stykki. Eftir það fór hún að hugsa um að gerast dómari sjálf, en fann engar bækur eða námskeið um að dæma prjónaskap. Til að mennta sig á þessu sviði kynnti hún sér hinar ýmsu hliðar á prjónatækni. Snemma á áttunda áratugnum fékk hún sitt fyrsta tækifæri til að dæma sýningu. Næstu 25 árin dæmdi hún og sendi inn prjónuð stykki á sýningar þar sem hún vann yfir 400 verðlaun.

Samhliða þessu lauk hún námi og fékk kennsluréttindi til að kenna "Advanced Knitting Design" (isl, þróuð prjónahönnun?). Hún fékk um það bil 200 uppskriftir birtar í prjónatímaritum, vann í garnbúðum og var á tímabili sölumaður fyrir garnverksmiðju.

Þessa dagana hannar hún og prjónar fyrir sjálfa sig auk þess sem hún kennir námskeið reglulega í ganrbúðinni Cast on Cottage í Roswell, Georgia, USA.

Nánari ferilskrá

Lesa meira...