|
|
Jæja, vikurnar urðu að mánuðum og vinnunni er ekki lokið.
Ég stakk af til Bandaríkjanna í mánuð þar sem ég fór m.a. á Stitches South prjónaráðstefnuna. Þar kynntist ég ýmsum nýjungum auk þess sem ég sótti námskeið í bútaprjóni (e. entrelac) sem verður nýja kennsluefnið mitt. Þetta er hluti af þeirri vinnu sem ekki er lokið, ég er á fullu að prjóna prufustykki, taka myndir og svo þarf að skrifa lýsingar og leiðbeiningar.
Von er á einhverjum nýjungum í netverslunina þegar líða fer á haustið, ég er í samningaviðræðum við nokkra aðila um að fá að flytja inn og selja vörur frá þeim.
Kveðja, Elín E |
|
|
Vegna breytinga á virðisaukaskatti og skipulagsbreytinga mun netverslunin vera lokuð tímabundið. Ég býst við að þetta verði kannski 2-3 vikur en hægt verður að hafa samband í gegnum tölvupóstinn ( prjonakona hjá gmail punktur com ) ef ykkur vantar eitthvað.
Vonandi kemur þetta sér ekki illa, Elín |
|
Í þessum skrifuðu orðum er verið að bæta inn nýjum og spennandi vörum í netverslunina. Meðal annars eru: sjalaprjónar, þ.e. prjónar til að festa sjöl saman - ekki til að prjóna þau :) handlitað garn, hver og ein hönk er einstök, hægt að fá garnið vafið í hnykil ef óskal er eftir prjónamerki, skemmtileg ný prjónamerki, öðruvísi en hafa fengist hingað til
Einnig er á leiðinni ný sending af KnitPro vörum, viðbætur inná tóman lager auk nýjunga frá framleiðandanum.
Fljótlega má svo búast við enn frekari spennandi nýjungum sem ekki hafa sést áður hér á landi.
Kveðja, Elín E. |
|
|
Sökum þess að spjallborðinu hefur ekki verið tekið eins vel og vonast var til hef ég ákveðið að loka því og bendi frekar á að fólk skrái sig á Ravelry og nýti sér allt sem það hefur uppá að bjóða.
Kveðja, Elín |
|
Í þetta sinn var ég ekki að kenna heldur var ég að auka við þekkingu mína og undirbúa ný námskeið sem verða í boði frá og með haustinu. Ég skellti mér til Ameríku á nokkurskonar prjónaráðstefnu sem heitir Stitches. Stitches hefur verið haldið í fjölda mörg ár og í ár bættist Stitches South, haldið í Atlanta, GA, í hópinn. Fyrir hafa verið Stitches East, Stitches West og Stitches Midwest, auk Camp Stitches.
Námskeiðin sem ég skellti mér á voru: Don't Fear Lace, kennari: Debbie Radke Shetland Shawls, kennari: Joan Shrouder Thinking Outside the Rectangle, kennari: Sandy Rosner Creative Wraps and Shawls to Your Porportion, kennari: Susan Lazear
Auk námskeiðanna er markaðstorg á staðnum þar sem eru samankomnir heildsalar, framleiðendur, garnbúðir, einstaklingar með smáframleiðslu og fleira. Það var ofboðslega gaman að sjá allt handlitaða garnið sem er í boði, auk nýrra garntegunda (t.d. sá ég eitt úr mjólkurprótíni og annað úr kornhyski) og allskyns smáhluta (og stærri hluta) sem gott er að hafa við hendina í prjónaskapnum. Ég er komin með tengiliði og hugmyndir að fleiri hlutum til að bjóða uppá í netversluninni svo það er spennandi að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 4 |